Tónlist hefur alla tíð verið stór hluti af lífi mínu. Ég tel mig vera alætu á tónlist, þó svo að ég hlusti mest á taktfast rokk. Ég hef svo tekið eftir því að börnin mín verða líka fyrir áhrifum af tónlistinni sem maður er að hlusta á. Til dæmis tók ég mér til og renndi nokkrum plötum með Tom Waits í gegn. Mér líkaði mjög vel við Closing time með meistaranum. Hildur Vaka mín var alveg sérlega hrifin af lagi sem nefnist Ice cream man. Við hlustuðum nokkuð oft á þetta ákveðna lag. Hildur Vaka kann reyndar textana við öll lögin á plötunni og er mjög stolt af því
Ég kemst alltaf við þegar ég heyri þetta lag. Það minnir mig svo mikið á Hildi Vöku. Það er svo magnað með tónlist hvað hún getur framkallað.
Ívar Andri minn hlustar líka á allt en hann hrífst mikið af rokki eins og pabbinn. Í hvert skipti sem ég heyri lagið Take this life með In Flames þá skýst upp ánægjuleg mynd af syni mínum upp í skallann á mér. Inga Lind mín hlustar bara á R&B og alltaf þegar ég heyri danskt R&B í DR þá skýst upp fjörug myndi í kollinn af frumburðinum. Elva mín er Cindy Lauper ![]()
Svo eru tónlistarmyndbönd hérna líka til að kíkja á.
Hæ
Ég fór á tónleika með Vulkaan í gær en það er hljómsveit Mads fóstra Hildar Vöku. Þetta var í Aars um hálftíma frá Álaborg. Ármann vinur okkar var einmitt að æfa þarna handbolta. Þetta voru frábærir tónleikar hjá Vulkaan. Mér leið pínu eins og Óla í dagvaktinni þar sem ég kom keyrandi með þeim í hljómsveitinni og hef eilífðar back stage passe
Mads vígði nýja gítarinn sinn á tónleikunum. PRS gítar af tegundinni modern eagle.
Mads var sko kóngurinn á sviðinu með þennan vígalega gítar. Þessi gripur kostar 52.000 dkk sem er 1.201.356,00 á núverandi gengi.
Svo langar mig að segja frá því þegar ég fór í smá upphitunar partý fyrir tónleikana með Opeth um daginn. Við hittumst nokkrir metal hausar hjá gaur sem heitir Rune og er vinur Mads og félaga. Það voru saman komnir þarna um 20 kallar. Danir reykja óskaplega mikið og ég var sá eini sem ekki reykti þarna í það minnsta ekki beint. Óbeinar reykingar. Það var reyk þoka þarni all mikil. Við vorum þarna í miðjum samræðum um ágæti hljómsveitarinnar Opeth þegar stór mýfluga hrundi niður úr loftinu. Hún hafði fengið bráða krabba. Ég hef aldre séð annað eins. Ég og Rune vorum einmitt að fylgjast með þessari flugu fljúga um þarna í reiknum þegar hún hrundi allt í einu niður steindauð.
Bjarni
Ég var að uppgötva alveg frábæra þætti. Þetta er jóladagatal og að sjálfsögðu 24 þættir. Það er uppistandari sem heitir Anders Matthesen sem á veg og vanda að þessu. Hann leikur líka alla persónur í þáttunum. Hann hefur einnig gefið út teiknimyndina Terkel i Knipe sem er alveg frábær, þar talar hann líka fyrir alla persónur. Hann er alveg feikilega góður. Þetta verður jóladagatalið heima hjá okkur næstu misserin það er alveg ljóst.
Hérna er smá sýnishorn fyrir ykkur.
Mig langar að hvetja alla til að kynna sér sænsku hljómsveitina Opeth. Ég sá þá á tónleikum á laugardaginn á stúdenta húsinu í Álaborg. Það var frábært.
Aðgengilegasta platan þeirra er án efa Damnation, allt mjög aðgengileg lög og flott. Uppáhalds platan mín með þeim er samt sem áður Blackwater Park.
Ég var í matarklúbbnum mínum í kvöld. Það er á hverjum mánudegi og er rosalega gaman. Það eru stúdenta garða fólk sem sér um að skipuleggja þetta. Hver meðlimur klúbbsins borgar 30 danskar krónur. Við fengum súpu í forrétt og chilli concarné og köku í eftirrétt. Svaka fínt. Það er komið að mér og öðrum félaga næsta mánudag. Við ætlum að hafa frikadellur með hvítkáli og kanel. Eftirrétturinn verður “den du ved nok” kaka sem Louse vinkona okkar Elvu og konan hans Mads vinar Hildar Vöku gaf okkur.
Þetta er ferlega skemmtilegt fyrirkomulag og maður kynnist fólki vel.
Svo er ég að fara í mat til Mads og Louse annað kvöld það verður gaman hef ekki hitt þau lengi.
Það er alveg merkilegt hvað maður verður eitthvað lítill í sér þegar maður verður veikur. Ég held að ég sé alveg sérstaklega slæmur með þetta. Ég er semsagt heima við í dag.
Ég er svo að teikna Klasa myndir og hegðunar myndir fyrir klasa, þeas í verkefninu okkar í skólanum. Klasar eru svona sniðmát fyrir forritunar mál. Vona að allir hafi það nú eins gott og þeir geta heima.
Bjarni
HÆHÆ það er nú farið að kólna í Álaborg. Ég merki þetta á eigin skinni og líka því að köngullærnar eru farnar að smeygja sér inn. Þær eru ekkert litlar. Þetta eru svona kvikindi eins og maður sér í dýralífsþáttunum, kannski smá ýkjur.
Annars var ég á tónleikum í gærkvöldi. Þetta var ótrúlega skemmtilegt kvöld. Það var líka rosalega spennandi að fylgjast með fólkinu. Hópurinn var blandaður mjög. Þarna voru mikið af törfum með garn niður á dýnur. Þetta er Bjarnízka og þarfnast kannski útskýringa: Tarfur = þykkur og mikill karlmaður. Garn = Sítt hár. Dýnur = Rass. Þessir menn voru mjög uppteknir af því að þeita flösu útum allt með miklum tilfæringum. Svo voru líka svona venjulegir plebbar eins og ég og þeir sveifluðu skallanum í staðinn. Þetta var mjög skemmtilegt. Aðalnúmer kvöldsins var Opeth sænskir rokkarar. Fanta gott kvöld.
Farið vel með ykkur og verið góð hvert við annað.
Bjarni
HÆHÆ Var að setja inn nýjar myndir
